Textar / Lyrics

ÁTJÁN OG HUNDRAÐ
D - Bm - G - D
Em -F#m - G - C - D

Sá þig í fermingarveislu

þú varst að kjafta við afa minn

ég var nýkominn úr neyslu

og varð samstundis ástfanginn

Síðan nokkrum dögum seinna

sá ég þig á sveittum bar

þá var ég nýkominn með bílpróf

og heim til þín ég bauð þér far


Við fáum okkur labbitúra

ekkert fær okkur sundrað

ég er átján þú ert hundrað

og okkur finnst gott að kúra

Ég sem hélt ég hefði lifað

og prófað ýmsan óþverra

hafði aldrei áður smakkað

eitthvað eins og svikinn héra

Þú sýndir mér gamlar myndir

og þær voru svarthvítar

ég sagði þér allar mínar syndir

en þér fannst þær ómerkilegar

Við fáum okkur labbitúra

ekkert fær okkur sundrað

þó ég sé átján og þú ert hundrað

finnst okkur samt gott að kúra







Át hana

D - Bm - D - Bm - G - D - Em - D

Þegar þú komst inn í líf mitt var gefin út stormviðvörun

og öllum að óvörum var ég ekki í fötunum

ég var bara eitthvað heima að horfa á sjónvarpið

eða út í tómið á áramótaskaupið

Mig langaði í pizzu en ég átti engan aur

var frekar sorrí gaur sem að lifði í eigin saur

ég ákvað samt að prófa að hringja og pantana

og vita hvort hún myndi fatta að ég væri að platana

Hún sagði að hún kæmi pottþétt innan hálftíma

og ég ætti bara að sitja hérna rólegur og bíða

og þegar að þú komst og ég sá hverju þú varst í

hætti ég strax að pæla í osti og pepperóní

Ég át þig upp til agna og var ekkert að smjaðra

og þegar ég var búin pantaði ég strax aðra

en hún var bara ekki nærri því eins góð og þú

þannig að nú er ég alveg pottþéttur að i'm in love with you

c'mon bay feel the heat it's nothing like the real

If you will be with me I let you sit by the wheel

we will pack our things and drive to eternity

and I wil promise our lives will be just like extacy







Akkúrat núna

Bm - G - Em


Akkúrat núna er ekkert að ske

hvað varð um frúna sem er er mér svo kær

Í gær var svo gaman  áttum við stund

létum okkur dreyma um tvö börn og hund

En akkúrat núna er allt ömurlegt

ég hugsa um fés þitt það er svo fallegt


Þú stormaðir burtu  og lést eftir bréf

í tárum það sekkur í hjarta mitt sef


Ég þori ekki að vakna og lifa aleinn

það er sárt að sakna þín og vera einn

Akkúrat núna er allt einskisvert

ó hvað ég þrái hold þitt allsbert

Akkúrat núna mig dreymir um stað

þar sem ég og þú núna rennum í hlað.....

Hvað sem þú ert að gera núna

þar langar mig að vera með þér

Ertu búin að gleyma hvað það var gaman

að hanga og gera ekki rassgat með mér

Hvar sem þú núna ert niður komin

Vildi ég vera við hliðina á þér

Þó að þú sért núna að daðra við annan

þá langar mig samt að vera með

ég vissi ekki að það væri bannað

að vera með öðrum dúllum en þér

núna þegar það er klárt og kannað

vil ég bara að þú sér hérna hjá mér.


Skaftfell Special

A - F#m - A -  D

Dagurinn stór

Alveg sex ára stuð og skrans

Maðurinn fór

niðrí og bæinn og

fékk sér bjór

Kom síðan heim

og setti orabaun ofninn í

meðan súsíið fór

fyrir ofangarð

og klóstið í

En við bætum úr því

fáum barnapíu

og fútt á ný

Ég gleymdi þér ei

þú skemmist aldrei       

happy anniversary




Hakk og spaghettí

D - A - Bm


Ég býð þér í mat í hakk og spaghettí

og ég sit og kertin brenna á mig gat


Og svo kemur þú inn

Og þú tókst með pabba þinn

sem tekur svo fast í spaðann minn.


Hverra manna ert þú spyr hann og skýtur að mér

bláköldum augum svo ég kasta upp


Yfir kjólinn þinn og kvöldmatinn

og föður þinn sem tekur í lurginn á mér

Pabbi bað um önd og nú missir hann sig

en ég, en ég vissi  ekkert um hans líf


Og hér sitjum við þrjú og ég spjörunum úr

en ég mun aldrei fá þína hönd


Ég mun aldrei aftur elda hakk og spaghettí

því ég mun alltaf æla því


Því ég mun, ég mun alltaf æla því





Skærlitað gúmmulaði

A - F#m - E - D


Litlu lömbin eru út í sjoppu

þar er íspinni og hamborgari

Sígaretturnar eru læstar inni

Barinn galopinnn og þar er sleikipinni


Og allskonar skærlitað gúmmulaði

Föstudagsnammi


Kirkjan galopin, en þar er enginn inni

Bókasafnið er alveg lokað

Sjoppan hún á sér engan háttatíma

Og ég virði það, enda fæst þar alltaf


Allskonar skærlitað gúmmulaði

Laugardagsnammi


Allskonar skærlitað gúmmulaði

sunnudagsnammi




Njótum afans

Sambatakturinn er allsráðandi

hvaða grín er þetta eiginlega

ég verð að fara og drífa mig í sparifötin

í hvaða átt er leigubílastöðin

Mamma segir koddu heim fyrir midnæt

ekki vera með vesen, ekkert big fæt


Ef þú ferð á dansflór með herra Stórfót

ekki vera lúser, ekki fikta í hans dóti

Leyfðu plötusnúðnum að njóta vafans

þú veist ekki nema ég sé að deita afans


Ekki vera móður þinni til skammar

ég hef leitað lengi og ég fann engan annan


Hver vill svosum hanga alein heima upp á sófa

Horfá útsvar, útogsuður alla daga

Rokkið kom löngu eftir salsa og samba

ég var ung og hafði gaman af að dansa


Nú er öldin önnur elsku besti vinur

Nú er kannski tími til kominn að setjast niður

Rifja upp gamla tíma, láta hugann reyka

væri næs ef þú ættir eitthvað smá að reykja

lítil lús gæti gert mig alveg fræga

en ef í hart fer þá læt ég skafið nægja


Látum okkur sjá, hvar á ég að byrja

réttu mér albúm og ekki vera feiminn að spyrja

Almáttugur hvað ég er orðin freðin

sástu refinn, hvað er ískápurinn að segja

réttu mér fötu,

nei ekki þessa fötu


ég er komin út úr líkamanum

ég er frjáls

ég er laus

og liðug

ég er sniðug gömul kona


Guð almáttugur og enn sú mæða

ertu hérna ennþá, hvað vorum við aftur að ræða

Ég minnist þess varla að hafa séð þig áður

Ég er svöng, kanntu að elda lasagna


Þú sýður hakk og tómatsósu á pönnu

setur það í fat og réttir svo mömmu

farðu svo upp í herbergið þitt elsku vinur

mamma þarf að eiga stund með sjónvarpinu

skildu samt eitthvað smá eftir af stuðinu þínu

Hver veit nema einhver snúður komi hoppandi út úr tækinu

og dagskráin skáni pínu.





Niðrá strönd

Vildir mig ekki þá, vildir mig ekki síðar, og þú vilt mig ekki enn

þó ég spyrji eftir þér á hverjum degi þá viltu aldrei vera memm

Meira segja þegar þú ert heima þá ert þú að hitta allt aðra menn

Þú segir samt koddu aftur síðar, þinn timi mun koma senn

Hvursu lengi á ég að bíða

Hvenær má ég hringa fara að smíða

Það er engin veiði í þessu vatni, hvað er ég að spá?

held ég fari og nái mér í net og fari niður að á

Hvursu lengi á ég að bíða

Hvenær má ég hringa fara að smíða

panta prest í Fella og Hóla kirkju

Taka þig niðrá strönd





Hamstra sjarma

Hey kramda hjarta

ég get ekki látið undir höfuð leggjast

að hringja og kvarta

Hey kramda hjarta

finnst þér smart að vaxa barta

eða er þér alveg sama eins og karlarnir í Ghana

Hey kramda hjarta

fegurðarblettur eða varta?

hver veit hvað verður heitt klukkan korter yfir átta

kramda hjarta

er hægt að hamstra sjarma

Er sjarmi eitthvað sem má setja í shawarma?





Tipp Topp

D - A - C - G

Seint um kvöld ég ranka við mér úr rotinu

það er enginn heima, ég er aleinn í kotinu

má ég fá mér púðursykur og rjóma

ekki fella dóma, ekki kalla mig róna

Sé glitt' í skottið á þér niðri á Hlölla

hvað ertu að gera? Ertu að detta í slölla?

Við eitthvað gerpi sem á ekkert gott skilið

Ég þarf að tala við þig, minnka aðeins bilið

Ég get verið alveg fáránlega hress

en ég get verið viðbjóðslega leiður líka

hvort er mikilvægara að vera hress og góður í bólinu

alveg í tipp topp standi í tólinu

Þegar kemur að leiðarlokum í lífinu

og við gefumst bæði upp á stritinu og stríðinu

játum okkur sigruð, leggjum spilin á borðið

tölum loksins saman eins og fullorðin

þá kemur eitt og annað upp úr krafsinu

eins og hver gerði betur í uppvaskinu

en sá vægir sem vitið hefur meira

ég gerði helling en þú gerðir fleira




Bragðarefir

Hvað ertu að bauka

setja niður lauka

gera klárt fyrir vorið

skella sér í slorið


mikið hlakka ég til

það hlakkar í mér

krakkarnir saman

að gera eitthvað gaman

við negrarnir

Hegranir, frændurnir

diffrun og tegrarnir

engar helvítis megranir

við erum óþokkar

löðrandi af kynþokka

við erum melirnir

og syndaselirnir

gleypum nokkrar ellur

og grillum saman gellur

förum á þjóðhátíð í eyjum

áður en við deyjum

við erum ótrúlega nettir

íllaðir kettir

og ansi vel

í sveit settir

við keyrum flotta bíla

og notum endaþarmsstíla

innflutta frá kína

massadrullufína


ef það segir þér eitthvað

þá hef ég aldrei smakkað

betra lasagna

koddu nú að djamma

svellkaldir ísbirnir

Bragðarefirnir

frömdu dansafrek

á diskótekinu

dolítið plássfrekir

dansflórinn frátekinn

föðmuðu náungann

beinlausan bananann


Ég kem með kremið

D - Bm

Em - Fm - G - A

Hnetusteikin í ofninum

og Haukur á fóninum

og allt í orden.

Það er að hitna í kolunum

og kvikna í kofanum

alveg eins og í den.

Hetjurnar blikka á skjánum

og ég skríð undir teppi

til að hafa það næs.

Mér snögghitnar á tánum,

ég mýkist í hnjánum

og ég gef frá mér dæs.

Allt er farið að glansa

mig langar til að dansa

held ekki aftur af mér.

Svona á lífið að vera

ég er einföld mannvera

og vil hafa það ljúft.

Flest verkefni eru flókin

lítið bítur á krókinn

allt bara frekar súrt.

En þegar ég halla mér aftur

nær mér ei nokkur kjaftur

ég er orðinn þéttur.

Landspítalinn

Ég hitti mann uppi á Landspítala

hann stoppaði mig og við fórum að tala.

Hann þekkti pabba fyrir langa löngu

en hafði upp á síðkastið staðið í ströngu.

Dóttir hans hafði flutt inn kött

serbneskan krútthaus með hala.

En það sem mér fannst út í hött

var þegar kvikindið byrjaði að tala.

Ég átti draum um að verða að manni

og gera aldrei hluti í gamni.

En tíminn leið og ég beið og beið

og það var ekki fyrr en í dag sem ég fann mig.

Finn á mér

D - Em - Bm / C - G - F - Em


Ég hætti ekki að gráta þó allt sé orðið bjart.

Hjarta mitt er svart því það er svo margt

sem ég þori ekki að segja þér því ég er svo viss um

að þú farir frá mér og finnir annan mann.

Svo ég loka þetta inni og hendi í gang

en þá hringir bjallan dinga-linga-dang

og frammi á gangi þar stendur þú

og ég segi þér allt í góðri trú.

Því ég finn á mér

að þú viljir vera hjá mér

þó ég sé algjört fífl

þegar ég finn á mér.

Þú verður að afsaka ég get verið pein,

það býr í mér púki og sjúkur refur.

Ég er alltaf úti á meðan þú sefur,

ég er melur.

Ég skil svo vel að þú hafir fengið nóg,

ég gekk ekki heill inn í þennan skóg.

En trúi því samt ekki að þú látir mig róa

út í móa.



Líf ertu að grínast

D - bm - G - Em


Hann er fagur halur

Magur sem mánudagur


Hann er gríðar svalur

svag fyrir fínum vínum og vel skipulögðum innri rýmum


Hún er með mikinn sans fyrir smáatriðum

dansar villta dansa allra kynslóða polka, ræl og valsa

Hann getur ennþá rappað þó að hann sé löngu orðinn pabbi

Hann er með sitt eigið lingó Hann er algert bingó Hann er sléttur paPPi


Hún er kominn niðrí kjallarann

Dimman og saggafullan

Ætlar að setja í vélina

Og fara vandlega yfir stöðuna


Hver er skjótasta leiðin

Til að græða peninga

Hver er fljótlegasta leiðin

Til að fanga lífshamingjuna


Hvar er núvitundin

Er hún úti með hundinn?

Nei, hér er allt eins og það á að vera

Allir úti að vinna og brjálað að gera


Líf ertu a grínast

Hvað kemst ég langt

Á ég einhver séns að eignast gervipels

Blásanserðan bens án alls estrógens




Sjúk í sól

Em - Bm - A

F#m

Þú veist að ég bara verð

að fara í hressandi ferð

á þriggja stjörnu hótel

með innifalinn morgun verð

Þú skilur að ég bara verð

Og þú sérð þetta er ekkert verð

Fá hita í kroppinn

Og smá lit á búkinn

Hún er sjúk sól

Hún er alveg óð

Hvað á ég að gera

Hvernig kemst ég af/að

Að lokum rofaði til

Og hún var alveg til

Til í að hverfa á braut

Finna aðra vetarbraut

Með smá sumar í sér

Bara smá til orna sér

Ég get ekki kveikt aftur upp

Ég vil alvöru yl sem umlykur mig ...





Sama sagan

F#m - D - Bm - A

Lífið er hart og biturt

En sirka bát þrítugt

Fara hjólin að snúast

Eins og við var að búast

Og við förum að búa

Að dvergum okkar hlúa - Úa

Þetta verður allt annað en gaman

Ég er ekki að ljúga

Ég græt á hverjum morgni

En Veit ekki af hverju

Ég er í ömurlegu formi

að mála úti í horni - Úa

Ég reyni að vera flottur alla daga

Greiða yfir inn með magann

Allir dagar eins Sama sagan

Hún er farin út í buskann

Hvað var ég að hugsa - úa

Þetta líf er frekar fitugt

en sirka bát fertugt

Fara vindar að snúast

Og við byrjum að bugast

Við bökum snúum sundur

Nú er búið þetta undur - Úa


Það hefði verði gott að vera á krúser

en vera ekki svona mikill djöfussins lúser

Alltaf á bömmer algjör fokker

Alla daga niðrá ölver

En nú er of seint að iðrast - úa



Ölkærastan
(Höf: Skarphéðinn Bergþóruson)

F - Dm - C - A# Gm


Þú bankar uppá alveg sós

ég renn á hljóðið.

Og teygi mig í dós túlkandi ljóðið.

Ölkærastan,

Þú ert ölkærastan mín.

Þú hringir alltaf milli 5 og 7

útúr því kex.

Svo erum við saman tvö

alveg 26.

Ölkærastan,

Þú ert ölkærastan mín

Og flegar þú kallar mig svín

ertu miklu meira en bara ölkærastan mín.

Þú ert langbesta langbesta langbesta

ölkærastan mín.

Þú kemur heim helmölvuð

og alveg óbeðin.

Segir ég er ekkert ölvuð

og kallar mig Skarphéðinn.

Ölkærastan,

Þú ert ölkærastan mín.

Ölkærastan,

Þú ert ölkærastan mín.



Er of seint að fá sér kaffi núna

Bm - G - Em - A       lína: a-f# d-f#


Er of seint að fá sér kaffi núna?

Mig langar bara ekkert til að lúlla.

Má fara aðeins nær,

aðeins nær en í gær?


Sit hérna aleinn og reyni að skrifa

skilaboð til þín á lítinn gulan miða

til að segja þér hvar ég er niðurkominn.

Ég fór í burtu meðan þú varst í sturtu.

Ætlaði bara að skreppa út í sjoppu

en mér fannst veröldin svo ómótstæðileg

að ég ákvað bara að þiggja næsta far

sem var í boði suður til spánar

og athuga hvað þau hafa að bjóða þar.

Er of seint að fá sér kaffi núna?

Mig langar bara ekkert til að lúlla.

Má fara aðeins nær,

aðeins nær en í gær?

Nú er ég búinn að eignast litla kænu

og geggjaðan kofa við örmjóa sprænu

og nú sit ég bara hér og bíð eftir flér.

Er í lagi að fá sér tapas núna?

Ég hef tapað, ég hef sigrað, ég hef glatað.

Get ég fengið aðeins fleiri skammta en í gær?

Í þessu lífi ég þarf ekki mikið.

Ég væri samt alveg til í að losna við stritið

og allt argaþras um ekkert af viti.


Er of seint að fá sér kaffi núna?

Mig langar bara ekkert til að lúlla.

Má fara aðeins nær,

aðeins nær en í gær?


Læda slæda

D - C - G - F (E)

Ég sit hérna á klósettinu og er að skeina mér

Og af lyktinni að dæma þá var var einhver hérna á undan mér

Sem kláraði allan pappírinn beint á rassinn sinn

en setti ekki aðra rúllu á klósettpappírsstandinn

Þannig að mér er skapi næst að ganga berserksgang

fara með buxurnar á hælunum fram á gang

og taka þennan skítabuxa upp á eyrunum

og sýna honum brot af mínum myrkustu hugsunum - já

Nú er eg er kominn upp í Skeifu með stefnuljósið á

Ég ætla að leggja í þetta stæði þetta er stæði sem ég á

En þá kemur einhver fauti og leggur beint í það

hann lætur bara alveg eins og hann eigi það

Það sem mér dettur helst í hug er að gefa allt í botn

og þruma beint í hliðina á honum ég veit það verður vont

klessukeyra drusluna, keyra allt í spað

en þá fæ ég skínandi uppljómun og vitiði hvað...

Ég læt það slæda….

Klukkan er orðin sjö og ég ætla að horfa á fréttirnar

en þegar ég kveiki á sjónvarpinu þá eru þær búnar

Þeim hafði verði flýtt vegna stórmerkilegrar

Og bráðnauðsynlegrar beinnar útsendingar

Mig langar mest til að taka imbakassann minn

og fleygja honum út fyrir sjóndeildarhringinn

en þá man ég eftir því að afborganirnar

af heimilistryggingunum eru gjaldfallnar

Svo ég læt það slæda

Ég er staddur út í búð að kaupa inn

Röðin er svo löng og bara einn kassi opinn

En þá opnast skyndilega kassinn við hliðina

Og gaurinn fyrir aftan mig er kominn fremstur í röðina

Mér er skapi næst að skella honum beint á andlitið

Lárétt og löðurmannlega á færibandið

Setja svo poka utan um hausinn hans

Og senda hann rakleiðs til satans

En ég læt það slæda

Raddir efans

Em - C - Am - Em

viltu með mér vaka í nótt

syngja með mér bíbí og blaka í nótt

þar til allt verður hljótt

Ég mun klæða mig í þverróndótt

viltu með mér strjúka í nótt

Strjúka með mér út í vornóttina

Lækna mig af minni sótt

Úr brókinni ég hef farið fyrir minna

viltu með mér snúa í nótt

Snúa bökum saman svört í framan

þar til allt verður hljótt

Út í móa ég sé mosann gróa

viltu með mér slaka í nótt

Slaka nokkrum niður þar til allt verður betra

þar til allt verður hljótt

Í höfði mínu þagna raddir efans


Við förum alla leið í nótt

villtu með mér strjúka í nótt

Setja niðrí tösku og hlaupa í burtu

Og við hleypum á skeið

Þvi það er engin leið að villast í björtu


Viltu með mér koma á flug

Fljúga með mér upp til blárra fjalla

Kasta kveðju á Guð

Krakkarnir ekki með öllu mjalla

París norðursins

D - G - Bm

Fögur fyrirheit á blússandi siglingu

á ullarnærfötum í grenjandi rigningu

Stími heim í heiðardalinn

góður strákur og vel upp alinn.

Mikið verður gott að knúsa kerlu

Erlu, Erlu, Erlu, Erlu góðu Erlu.

Sem giftist mér því ég kunni að skaffa

sjómaður og sonur hans Haffa.

Hlakka svo til að hitta börnin

Maríu Hænu, Hafþór og Örninn.

Vinna upp tíma, klippa smá og líma

í eltingaleik fram að háttatíma

Hafið - ég þekki ekki annað

Afi - var harðmenni annálað

Mamma - sultuslök nunna

Systir mín - Gunna þunna

Brósi - var örugglega vangefinn

Frændi - rændi mig æskunni

En þegar heim er komið bíður mín flaskan

og á tröppunum stendur ferðataskan.

Erla góða, fór með vini á hestbak

síðsti túr hann keyrði um þverbak.

En þegar botni er náð er bara að standa upp aftur

þetta veit hver heilvita raftur.

Batnandi mönnum er best að lifa

hinir geta bara étið hundaskít og slefað.


Prins Drjóló

Dm  - A# - Gm

Hann hét Prins Drjóló og var vafasamur gaur.

Fortíð hans var skrautleg og útötuð í saur.

Það vildi ekki nokkur ma›ur kannast við hann.

Þau útskúfuðu hann, hann fór sóló.

Prins Drjóló.

Hann var yfirgefin sál, fannst það ekkert mál.

Rankaði upp við það að hugur hans var nár.

Á bak hans var skrifað frekar grand:

Þú ert nóló Prins Drjóló.



Sandalar

Dm - C- dm - C - F - Em - F - G
Dm - F - G


Mannstu þegar við vorum ung

og bara frekar fresh.

Vorum alltaf eitthvað að djóka

oftast nokkuð hress.

En nú er lífið hálfgerð barátta

og það er þessi árátta

að fara á hverju sumri til útlanda

og klæða sig í sandala.

Að skoða ömurlega kastala

Meðan ég gæti verið að horfa á fótbolta.

En mér leiðist fótbolti

það sem heldur mér gangandi

er óslökkvandi bjórþorsti.

Sumir halda að ég sé fáviti

en ég er í raun helsjúkur grillari

sem getur ekki hamið sig.

Algjörlega vonlaus steik

Ég er úr leik….

Satan þú ert að ruglast.

Þú verður að hafa hugfast

að hugarfars fæst ekki í kjötborði

í hefðbundnum súpermarkaði.



Abbadís

Cm - A# - G# - Gm

Fm

Ég samdi lag handa þér í dag og ég fór til þín
því mig langaði til þess að leyfa þér að heyra það.
Ég horfði allan tímann í djúpu augun þín,
og var að vona að þú myndir jafnvel missa þvag.

Hvernig leggst þetta í þig, færðu hroll?
Átti það að vera í dúr frekar en moll?
Ég lít niður á gólfið en ég sé engan poll,
ég pakka saman, skáldsins líf er púl og tekur sinn toll.

Nú ætla ég að fara og gera það sem afi sagði mér.
Fara og bæta heiminn, stofna gagnaver.
Læra utanbókar öll þessi dásamlegu kver
en fyrst ætla ég að fara í bingó með þér.

Spjöldin voru mörg og ég ílengdist.  
Öll mín frómu áform fóru á ís.
Ég varð aldrei neitt annað en þinn auðmjúkur þræll.
Þú ert mín eina sanna abbadís.

Þú ert mín eina sanna abbadís.




Fallegi smiðurinn

B - G#m - A

Hér erum við 2000 árum síðar

komin saman til að drekka límonaði

dilla búka hrista hönd og læri

nú er tækifærið að hlaupa á snærið

Höllum okkur aftur á smartasta

mögulega hátt sem að okkur er í lófa lagið

þetta er lagið sem við höfum beðið eftir

þetta er lagið sem að kemur alltaf strax eftir fréttir

Dansinn við það er frekar einfaldur

þú setur hendina út og þá gerist einhver galdur

dilla búka hrista hönd og læri

Náðu þér í snæri, þó það nú væri

Fallegi smiðurinn

Settist upp á hestinn sinn

reið svo út í aftaninn

belessaður drengurinn

Fallegi smiðurinn

geirnegldi saman berserkinn

Hrærði saman frómasinn

Já þarna þekkjum við karlinn



Kosmós
(Höf. Pétur Már Gunnarsson)

Dm - C - Bm - A#

Þú eyjapeyja eyja

snauða dauðateygja

þú spekihripleki fleki

á Drekasvæðisreki

þú Hemma-Gunn stemmning

og menningarhremming

sem sullar í ballarhafi

full í ullarlafi

Grímsstaðnaða sker

þú hrunda grund

siðblinda stund

þú framlága lágkúra

óleysingjans hálssnúra

herm þú mér:

sem nöguð, buguð, sliguð,

sjálfafsöguð þjóð

Má ég fá smá kosmós hjá þér?






Mjaðmir

A - D - Bm - D - E

Nátthrafninn fljúgandi

slegginn í framan

Var flottur í veislunni

nú er ekkert gaman

Slétt brugðið beggja von

sér bara klóið

Grær sár á mjöðminni

flær stingast undan

Drengirnir byggja upp

glætan er engin

sleginn með fyrsta bust

sigurinn fenginn


 


DÚLLUR

Hvað er að frella?

Þetta er yfirnáttúruleg gella

Og þessi gæji

Hann er ekki alveg í lagi

Þau eiga beibí

Sem er alltaf í flottum fötum

Þau eru í hestum

en lykta samt aldrei illa

Hann er í sporti

Og heldur liðinu á lofti

Enda langbestur

pabbi hans var prestur

Alltaf kósí kvöld

á laugardögum

Horfa á ræmu

og segja beibí sögur


Hann safnar skeggi

en hún þolir það ekki

Kastast í kekki

í svörtum reykjarmekki

En oftar en ekki

í þéttingsföstu knúsi

upp í bústað

með helling af snakki


Hann grillar alltaf

hún gerir geggjað salat

Hún þrífur bílinn

Finnst þér hún skrýtin?

Fara í íkea

Og fá sér kjötbollur

Setja allt saman

Geggjaðar dúllur

Hann safnar skeggi

en hún þolir það ekki

Kastast í kekki

í svörtum reykjarmekki

En oftar en ekki

í þéttingsföstu knúsi

upp í bústað

með helling af snakki

Af gömlum vana

Á kvöldin grilla fashana

Reykja havana

og hafa gaman

Þau eiga sjeffer

sem er gríðarlega lekker

en samt ekkert

á við feld eftir Eggert

Hún er í leðri

Alveg óháð veðri

Út á smurstöð

Lenti í daðri

Glóðarauga

og dökkbláa bauga

eftir helgi

með kappanum knáa

Hann safnar skeggi

en hún þolir það ekki

Kastast í kekki

í svörtum reykjarmekki

En oftar en ekki

í þéttingsföstu knúsi

upp í bústað

með helling af snakki





Costa Del Jól

(Skakkamanage)

Hey people merry merry christmas

You know we love you all

Don’t take it personally this time

we’re staying at Costa Del Sol

We’ll be back right before the new year

hope we will catch you then

maybe in a crazy new years party

We all meet again

Deer friends, family and acquaintance

this song is to you all

we wish you all a merry christmas

You know we love you all

Hey people thanks for all the good times

it’s been a hell of a blast

Can’t wait to hang out in the new year

and talk about the past

Thanks for the christmas presents

it’s what we wanted so bad

And those of you who forgot it

You know we want be sad

Your friendship is all that matters

And you can give it at any time

You can do it in love letters

And it doesn’t have to rhyme

Deer friends, family and acquaintance

this song is to you all

we wish you all a merry christmas

You know we love you all

So we are chilling in Malaga

sending good vibes to you

Wish I can say abraca-

dabra and you were here to

We have some loved one with us

And we are having so much fun

We’ve been having a happy christmas

and so much is undone

We hope your folks is in good health

and and you are beginning to learn

Good people is the most wealth

That you will ever earn

Deer friends, family and acquaintance

this song is to you all

we wish you all a merry christmas

You know we love you all








Bréfberinn
(Höf: Rúnk)


D - C - F - G - A
Ég átti engan aur og C enga vinnu að fá
… um jólin
þá kom að mér gaur og bauð mér að bera út bréf
...um jólin

Hús úr húsi ég fór og syngjandi bar út mín bréf
… um jólin
úti var jólasnjór  og snjókarlar á hverri lóð
….um jólin
þá hitti ég jólakór og söng með þeim eitt jólalag
...um jólin

Lífið yndislegt er
Þú þarft ekki að eiga 4-Runner
Til að eignast trú
þarftu bara að vera þú




Bréfberinn
(Höf: Rúnk

C# - A#m - F# - G#
A#m - D# - A#m - D# - G#

Jólin eru að koma
og mér líður svona og svona
ég er bara að vona
að þau komi ekki strax

Það er dimmt kvöld
og ég spyr mig
er að koma ný öld
því að allt liðið ár hefur gleðin haft völd

Ég er staddur á stað
veit ekki hvar
en ég veit það er bar
og allt þetta ár hef ég verið þar

Umhverfið allt er svo litlaust og svart
þá heyri ég í fjarskanum óma
jólalög hljóma
… og allt verður bjart

Jólin eru að koma
og mér líður svona og svona
ég er bara að vona
að þau komi ekki strax!

Ég er staddur á stað
veit ekki hvar
en ég veit það er bar
og allt þetta ár hef ég verið þar

Á barnum er enginn og mér er kalt
ég hef verið að drekka
eitthvað annað en malt

Umhverfið allt er svo litlaust og svart
þá heyri ég í fjarskanum óma
jólalög hljóma
… og allt verður bjart

Jólin eru að koma
og mér líður svona og svona
ég er bara að vona
að þau komi ekki strax!




Jólakveðja

(Ásamt Gosum)

Þá eru jólin komin enn á ný

og ég er kominn í jólafrí

ég ætla smella mér í jólabað

Það er ekki lítið sem ég elska það

Ég er kominn sparifötin í

hreina jólasokkana

og jólakötturinn er í

fýlu bak við blokkina

Jólasveinninn er að dúllast

í pabba frammi á gangi

í ofninum er hnetusteik

það er sumsé allt í gangi

Ég er að tryllast úr spenningi

núvitundin í lágmarki

svo ég kalla saman jólakór

og við syngjum saman jólalag

Prinsinn sendir jólakveðju

til heimsbyggðarinnar,

hann elskar ykkur næstum öll

þið eruð ljúflingar

Ég drekk ekki jólabjór

Það er nú meira bullið

sett í nýjar umbú›ir

sama gamla sullið

Mér er sama um pakkana

ég á nóg af dóti

Ég gaf þá snauðum Albana

hann gaf mér knús á móti

Þið fáið enga gjöf frá mér

en ég skal semja vísu

hún fjallar um þjáða þjóð

í djúpri jólakrísu

Af hverju við höldum jól

Það veit ekki nokkur

kveikir samt á kertunum

furðulegur flokkur.

Prinsinn sendir jólakveðju

til heimsbyggðarinnar,

hann elskar ykkur næstum öll

þið eruð ljúflingar…